Ég klúðraði eitthvað víst linknum á söguna um Daisy sem var birt í einhverju tímariti, en greinina má finna
hér.
Síðustu viku eyddi ég á labinu og var að byrja að koma mér í vinnugírinn aftur :). Þó ég sé komin á hinn endan á hnettinum þá mæti ég alltaf fyrst í skólann, hinir mæta yfirleitt tveimur klukkutímum á eftir mér en ég fer reyndar oftast fyrst en það er útaf hundinum :). Veðrið hefur verið svo gott hérna síðan ég kom fyrir utan í dag því hefur mér liðið eins ég væri í sumarfrí hihihi. Í dag var skítkalt og rigning, ekki mitt uppáhald ;).
HelginAnnars var löng helgi hjá mér, það var frí í dag því það var Martin Luther King dagur. Á laugardaginn bretti ég upp ermarnar og þreif, ekki hátt en lágt ;). Síðan var
Victor staddur í Berkeley og hittumst við í slúðurkaffi, ég held það sé alla vega réttnefni þar sem ég held ég hafi alveg staðið mig í þeim málum. Eins gott Victor að þú berir mig ekki fyrir öllu sem ég sagði ;). Annars var ég að fatta að ég luma á meira slúðri handa þér Victor ;). Ég sá s.s. um að skemmta honum hluta þess tíma sem hann beið eftir kærustunni sem var í viðtali í Berkeley háskóla. Það var agalega gaman að hitta hann og ekki spurning að ég kíki í heimsókn til hans í Stanford einhvern tímann á næstu mánuðum. (Því miður gleymdi ég myndavélinni heima :( )
Sunnudeginum var síðan eytt í hiking og picnic, hvað annð :). Ég hef eytt ansi miklum tíma í að labba um holt, hæðir og flatlendi síðan ég kom. Kit sótti okkur Daisy og fórum aftur í Tilden regional park en á nýjan stað. Þessi ferð var erfiðari en þær um síðustu helgi og er ég með rosalegar harðsperrur í rassinum að ég get varla staði upp :Þ. Hér fylgja nokkar myndir með.
Svipmyndir frá Tilden regional park
Útsýni frá Tilden park, brúin á myndinni er Golden Gate Bridge
Naked tree, mér fannst það frekar merkilegt því þetta var eina tréð sem var nakið :)
Golfvöllurinn í Tilden park sem er ekki svo langt frá mínu heimili. Þessa mynd setti ég spes inn fyrir þau hjón sem hafa tilkynnt mér að ætli að koma til mín að spila golf :).
Ég að reyna að þjálfa Daisy
Á mánudaginn skellti ég mér til San Francisco með Kristínu, sem er doktorsnemi í hugvísindum frá Þýskalandi, og Önju, sem er mastersnemi í líffræði frá Hollandi. Veðrið var ekki mjög heppilegt til að túristast en við reyndum þó :). Við löbbuðum yfir Union Square og eyddum svo mestum tímanum í Chinatown vegna mikillar rigningar tók ég mjög fáar myndir :). Eitt eftirminnilegasta atvikið í þessari ferð var trúlega þegar við vorum í lestinni og mjög gay eða trans karlmaður um fimmtugt fór að segja okkur hvar best væri að fara úr lestinni til að koma inn í Chinatown á besta stað. Á eftir því fór hann að segja okkur frá því hvað dagurinn hefði byrjað illa hjá honum sem endaði með því að hann fór að hágráta. Þetta er samt trúlega atvik sem telst til að vera “you had to be there moment” ;).
Svipmyndir frá San Francisco

Við fyrir utan hliðið inn í Chinatown

Hádegismaturinn minn í Chinatown
Búddistamusteri
Miðað við hvað ég hef verið frekar mikið upptekin í að gera eitthvað allt annað en sinna skólanum síðan ég kom hingað út er ég bara farin að hafa áhyggjur af því hvernig ég kem inni í planið hjá mér þremur kúrsum og verkefninu ;).
Á morgun lofa ég leiðbeinendum mínum og sjálfri mér að ég bretti um ermarnar og set í vinnugírinn.
Knús og kossar
Fjóla