Vá, þetta var aldeilis stutt vika. Eyja komin og farin aftur. Það var stíf dagskrá allan tímann og komumst við því yfir mjög mikið. Fórum yfirleitt á fætur um 7 á morgnana. Já, já það þýðir ekkert minna þegar mikið er um að vera ;). Það var rosalegt stuð og mikið gaman hjá okkur vinkonunum. Það var mikið hlegið og mikið borðað, reyndar átti Eyja í einhverjum vandræðum að klára skammtana sem aftur á móti vafðist sko ekki fyrir mér.
Hér að neðan kemur ritskoðuð útgáfa af ferðasögunni í máli og myndum ... aðallega myndum ;):).
Dagur 1/Verslunardagur í San Francisco
Við hófum verslunarferðina í “gettó-inu” sem einkenndist af pissulykt og skuggalegu fólki en við fundum samt góðu búðirnar. Síðan var haldið niður í miðbæ og myndirnar segja allt sem segja þarf, held ég.
Eyja á Union square
Nokkrir pokar
Dagur 2/San Francisco skoðuð fótgangandi
Þennan dag gengum við mjög mikið og þá aðallega upp í móti og vorum ekki lítið þreyttar í fótunum eftir allar brekkurnar. Við skoðum til dæmis fjármálahverfið, ítalska hverfið, Telegraph hill/Coit Tower og Crookedest Street. Borðuðum á veitingastað sem hafði hvítlauk í öllu og mikið af honum, fórum í cable car og aðeins komið við í búðum á heimleiðinni.
Kaffibollinn minn
Dæmi um brekku
Við farnar að nálgast Coit Tower

San Francisco

Crookedest Street

Eyja og staur
Eyja í Cable car
Eyja í Kínahverfinu Dagur 3/San Francisco aftur skoðuð fótgangandi
Gengum yfir Golden gate bridge og tilbaka aftur. Einhverja hluta vegna datt okkur í huga að labba niður að Fisherman’s Wharf frá Golden Gate. Þessi göngutúr reyndist lengri en hálft maraþon takk fyrir.
Picnic hjá Golden Gate bridge
Á röltinu
Eyja á Fisherman's Wharf
Sæljón

Við sólbrenndar
Dagur 4/Ferðalag um Norður Kaliforníu
Við leigðu bíl og keyrðum um Norður Kalíforníu og gistum í Guerneville. Það helsta sem gert var: fórum í heimsókn í Jelly Belly (sælgætisfyrirtæki), skoðuðum Napa Valley og Calistoga. Fórum í Spa í Guerneville sem var mjög áhugavert og líka mjög gott. Þetta var spa sem kallaðist "wet treatment" og var því nokkuð blautt :).
Eyja og bíllINN
Við í Jelly Belly

Napa Valley
Hótelið sem við gistum á

Dagur 5/Heimleið
Keyrðum niður eftir strandlengjunni til Berkeley. Kíktum á lífið í Sausalito. Komum aðeins við í Tilden park og hæðunum í Berkeley. Um kvöldið fórum við svo í bíó á eðalmyndina Sex and the city.
Pecific Ocean
Sausalito

Eyja í Tilden

Eyja að skoða DNA

Við á leiðinni í Bíó á Sex and the City
Við að sprella
Dagur 6/Berkeley
Seinasta deginum var eytt í Berkeley. Löbbuðum um Berkeley og stoppuðum á helstu stöðunum sem selja ómótstæðilegar kökur og enduðum á að borða á einum besta veitingastað í Berkeley sem er indverskur.
Kökur
Meiri kökur :)

Eyja á Berkeley beach

Eyja á Campus

Eyja á indverska staðnum
Hollywood
Ég frétti það síðan fyrir nokkrum dögum að ég bý í aðal Hollywood götu Berkeley. Nokkrar myndir hafa verið teknar í götunni og þessa dagana er verið að taka upp myndina “Happy tears” með Demi Moore í aðalhlutverki. Eins gott að Geogre Clooney fari að láta sjá sig hérna hehehe.
Eyja í Hollywood-götunni.
Læt þetta nægja í bili
/Fjóla