Á Sproul Plaza á Campus, sem er eins konar torg, er yfirleitt alltaf fullt af nemendum og básum þar sem er verið að reyna að plata mann í hin og þessi samtök og ýmislegt. Ég venjulega labba nokkuð rösklega framhjá og segi kurteisilega nei takk við öllu sem mér er boðið.
Í dag var atburðarásin önnur:
Fjóla labbar rösklega á Sproul Plaza.
Í dag var atburðarásin önnur:
Fjóla labbar rösklega á Sproul Plaza.
Strákur labbar í veg fyrir hana og segir: Are you a runner? You look like it.
Og þar með kolféll Fjóla fyrir honum ;).
Og þar með kolféll Fjóla fyrir honum ;).
Nokkrar svipmyndir af lífinu:
Daisy með nýja dótið sem ég gaf henni
Þá var nauðsynlegt að kaupa eitthvað handa hundinum á Íslandi. Hann fékk svona flotta peysu merkta háskólanum :).
Ég er grínlaust með dádýr í bakgarðinum sem vilt gæludýr. Vonandi kemst ég nærri því síðar.

The Campanile towers á campus. Það er hægt að fara þarna upp og horfa yfir Bay area.
Sproul Plaza í hádeginuEr örugglega janúar ;)? (Blóm sem ég fann á Campus)
3 ummæli:
Vá hvað það er gott veður hjá þér - lítur allavegana út fyrir það á myndunum:)
Hæ sæta frænka, gaman að fylgjast með þér þarna úti! Náði gæinn að tæla þig í hlaupaklúpinn eða e-h allt annað? ;-) En segðu okkur nú hvernig stígvél þú valdir þér hér ríkir mikil spenna :-)
já, það er frekar gott veður hérna :). Að minnsta kosti annan hvern dag :). Gæjanum tókst næstum því að plata mig í hlaupaklúbbinn :). Ef ég hefði tíma fyrir svoleiðis þá hefði ég ekki hikað við að vera með. Það er bara svo mikið að gera hjá mér með hundinni og skólann :).
Ekki enn búin að panta stígvélin, ef ég panta ætla ég að taka Maríubjöllustígvélin þau er mest ég :). Eini ókosturinn við stigvél að það er ekki gott að labba í þeim :D. Ég labba svo mikið hérna þannig ég ætla að aðeins að bíða með að kaupa mér stígvél. Held í vonina að rigningin hætti bara :).
Skrifa ummæli