Á fimmtudaginn fór Daisy að vera eitthvað ólík sjálfri sér. Á föstudaginn fór hún svo að æla og ældi alla aðfaranótt laugardags og bar sig mjög illa. Var alveg hætt að vilja borða og drekka. Við hvorugar sváfum nokkuð þá nótt. Á laugardaginn leist mér ekkert á blikuna þegar hún fór að æla blóði og ákvað því að reyna að koma henni til læknis. Við komumst síðan á dýraspítala með aðstoð vinar sem keyrði okkur. Þegar við komum á dýraspítalann varð Daisy enn þá veikari. Það fóru koma út kýli um allan líkama hennar. Eftir röngten og blóðprufu kom í ljós að blóðið leit illa út og eitthvað virtist vera innan í henni og ekki var ljóst á þessum tímapunkti hvort hún þyrfti að fara í aðgerð eða gæti losað sig við þetta sjálf. Eftir þetta vorum við sendar á bráðmóttöku fyrir hunda og ketti og þar átti Daisy að vera eftir. Það var ekkert lítið erfitt fyrir mig að skilja hana eftir en ég átti ekki annara kosta völ.
Sem betur fer hresstist litla greyið mitt fljótt og fékk ég að sækja hana daginn eftir. Hvað gerið Daisy mína svona veika kemur trúlega aldrei í ljós. Læknarnir voru vissir um að hún hefði fengið ofnæmi fyrir einhverju og trúlega hefði hún borðað eitthvað dýr/pöddu eða eitraða sveppi og jafnvel hefði eitthvað dýr stungið hana. Ég tel mig hafa fundið staðinn í garðinum þar sem þessi hættulegi sökudólgur er að finna og er ég búin að reyna að girða hann af og vona ég að Daisy komist ekki þarna inn aftur.
Núna hefur litla snúllan mín það bara mjög fínt og steinsefur alveg uppvið mig. Hún er reyndar mjög hrædd um að ég/”mamma hennar” yfirgefi hana aftur og fer strax að gráta ef hún sér mig ekki. Ég þarf næstu dagana að elda handa henni því hún þarf að fá alveg sérstakt fæði og fær að borða oftar en venjulega yfir daginn. Ég þarf því að reyna að vera sem mest heima næstu vikuna. Ég ætla nú samt alltaf að mæta í tíma.
Hafið það gott elskurnar!

Knús, knús
Fjóla
p.s. ég breytti um kommentkerfi svo núna ættu allir að geta kommentað sem vilja ;):).
2 ummæli:
Æj snúllan mín, jisús hvað þetta hefur verið erfitt! En gott að heyra að henni Daisy líður betur núna og hún er sko aldeilis heppin að hafa þig að þegar hún er svona lasin.
Farið nú vel með ykkur báðar tvær, hugsa til ykkar ***
æ greyið. Alveg hrikalegt að sjá dýrin veik.
kv.
SLS
Skrifa ummæli