Núna er ég búin að upplifa það að vera stödd í Bandaríkjunum á Valentínusardaginn og það er sko aldeilis upplifun. Eða eins og einn gamall professor í skólanum sagði við mig, Fjóla trúðu mér þetta verður bráðum official holiday hér í US. Á þessum “merkisdegi” fór ég í munnlegt próf sem fólst í því að ég átti að kenna samnemendum mínum og kennaranum en þessi sérstaki dagur gaf mér að sjálfsögðu tækifæri til að sprella smá í lokin á minn einstaka hátt ;) ... og kennarinn hafði húmar fyrir því múhahahaha :).
Annars lét ég loks verða að því í dag að prófa að fara út að hlaupa. Það er hlaupabraut fyrir almenning í 1km fjarlægð frá mér og skellti ég mér þangað og það var GEGGJAÐ. Hljóp 6km og bara nokkuð sátt með það því ég hef ekki hlaupið í marga mánuði :).
Ég bíð núna spennt eftir að fá kaffikönnuna sem ég var að kaupa :). Ég áttaði mig á því í síðustu viku að slíkt apparat væri nauðsyn.
Bandaríkjamenn eru snillingar í að finna upp hina ótrúlegustu frídaga og eru líka svo sniðugir að láta þá alltaf bera upp á mándegi eða föstudegi .... víííiiiiiiiiii það er lönghelgi (s.s. frí á mándaginn).
Knús og kossar úr sólinni
Fjóla
Fjóla
p.s. mynd fegin að láni frá www.gentlegiantsrescue.com/holi-danes_page_3.htm
3 ummæli:
já, ég er alveg á því að ég komi bara yfir til þín. Hérna er frídagur ekki einusinni í orðbókinni! Ég var að klára prófin á föstudaginn, og nýja önnin byrjar á morgun!! Þ.e. við fáum HELGARFRÍ á milli anna.. ohh ég er svo BRJÁL!
OG .. það er ekkert að koma sumar einsog ég hélt.. það er sól ollræt, en -4° !! Það er 11°minna en í Reykjavík ! ..kommon!! Veit sumarið ekkert á hvaða breiddargráðu ég er??
Hvaða frídagur er á mánudag? eftir-valentínusarfögnuður? ;)
kveðja
Begga-pirripú
(Hvað ætli Gerður stærðfræðikenna ri myndi segja um mislyndið mitt þessa dagana..hahaha)
já, næstum því ;). Það er svokallaður "Presidents's Day" hét áður "Washington's Birthday". Ef ég skil þetta rétt þá á Washington afmæli og þá þurfa allir í US að fagna hehehe ;). Það er víst stefna hérna að hafa aldrei frí vegna trúar, þ.e.a.s. til að gera ekki upp á milli trúarbragða því hafa þeir gripið til þess ráðs að hafa að minnsta kosti einn frídaga í mánuði (oft af skrýtnum ástæðum) og þá venjulega á mánu- eða föstudag :)
p.s. Gerður myndi hringja beint í pabba þinn ;) :D
Oooo... draumur í dós að vera í amríkunni á þessum degi elskenda. Vona að súkkulaðihjarta hafi fylgt sprellinu í lokin... hvernig eru myndarlegheit prófessorsins? ;)
Skrifa ummæli