

Já, ég fékk kaffikönnuna mína í dag :). Ég er því á fylleríi núna (N.B. kaffifylleríi). Mér tókst að klára súkkulaðikökuna með nýlöguðu kaffi (bara pínu illt í maganum núna af ofáti hihihi, hefði kannski átt að sleppa að elda mér kjúlla líka :Þ). Um helgina er spáð mikilli rigningu og stormi .... maður heldur sig því líklega bara heima sem er allt í lagi því ég get eytt tímanum í að drekka alls konar kaffi úr nýja apparatinu mínu. Ég ætla samt ekkert að hætta að fara á kaffihús og fá mér kaffi, kannski ég fari bara aðeins sjaldnar ;):).
Kaffikveðja
Fjóla in heaven ;)
7 ummæli:
Til haaaaamingju með nýju kaffivélina! Ég held að kaffivélin á Smyrli verði bara abbó =)
kveðja, Marta Rós =***
já, það má sko bjóða mér kaffi :D
..má ég koma yfir??
vá 4 pakkar af kaffisíum. Þú hefur nóg að gera við að drekka kaffi.
Til hamingju með nýju vélina, skál!
já, Begga mín meira en velkomin :D!
Plataðu Andrés til að splæsa á þig ferð ;) ... getur komið í júní og þá getum við skellt okkur líka til Hawaii ;):).
Fjóla
hvað segirðu, kemur betra kaffi úr svona græju með grisjum en úr presskönnu? er ekki allt of hemjandi að vera háður svona grisjum? nú er ég bara vega og meta, því mér finnst græjand nefninlega ótrúlega flott hönnuð og gæti vel hugsað mér eina slíka!
Þetta er margfalt betra en kaffi úr presskönnu :). Það kemur alltaf smá forða efst sem mér finnst geggjað :). Mæli með svona græju. Það er líka hægt að kaupa einhvern aukahlut í hana þannig maður getur bara notað venjulegt kaffi beint :).
Sigrún, ég verð ekki lengi að klára þessa poka ;):)
Kv
Fjóla
Ég á alveg eins kaffivél og ég er þvílíkt ánægð með hana - hún er bara snilld:)
Skrifa ummæli