Ég vil byrja á að óska gamla og “núverandi” átrúnaðargoðinu mínu Páli Óskari til hamingju með verðlaunin á íslensku tónlistarverðlaununum. Ætli hann lesi ekki örugglega bloggið mitt??????
Annars miða við fréttir frá Íslandi er bara allt í rugli, bensínverð stefnir á óendanlegt með tíma, krónan bara veikist og veikist, sem er ekki alveg nógu hagstætt. Kannski bara vitleysa að koma heim aftur ??? ;).
Amma og afi eru búin að koma í heimsókn og farin aftur. Það var alveg yndislegt að hafa þau. Á hverjum morgni beið mín heitur hafragrautur þegar ég var búin að fara út með Daisy. Við elduðum saman eða fórum út að borða á kvöldin og út að labba með Daisy og svo brölluðum við ýmsilegt annað. Þau að sjálfsögðu komu með fullt fullt af íslensku nammi og jminn hvað ég er búin að troða mikið í bumbuna hihihi. Ég fór reyndar með eitthvað af namminu í skólann og gaf krökkunum með mér á labinu. Þau áttu ekki orð yfir hvað íslenskt nammi væri gott og spurðu mig meira að segja daginn eftir: Áttu meira? Þristar og fylltar lakkrísreimar klikka aldrei. Ég hef ekki fundið fyrir heimþrá síðan ég kom hingað út fyrr en sama dag og amma og afi fóru en sem betur fer tókst mér að sofa hana af mér á einni nóttu, að minnsta kosti í bili :Þ.
Ég er komin með alveg upp í kok af heimaverkefnum og er því mjög kærkomið að það sé spring break (vorfrí) í næstu viku, það þýðir að það er frí í skólanum alla vikuna. Mér sýnist á öllu að ég þurfi að nýta það í að læra en ég þarf alla vega ekki að mæta í tíma víiiiiiiii. Ég stefni samt að því að reyna að fara út að hlaupa nokkrum sinnum í næstu viku. Ég verð að segja að mér finnst algjört rugl að þurfa að taka heilt ár af kúrsum í doktorsnámi, ómögulegt að finna nógu marga sem nýtast beint í verkefninu.
Páskarnir eru víst á næsta leyti og ég er stoltur eigandi af 11 páskaeggjum (9 númer 1 og 2 stór :D) upphaflega 14 eggjum. Ég býst við að reyna að elda eitthvað almennilegt á páskadag til að ég borði ekki bara páskaegg :D.
Annars í stuttu máli um eitthvað hvað ég hef gert/eða gerst undanfarna daga:

Farin að styrkja heimilslausa í Kalíforníu.
Búin að labba yfir Golden Gate brúna og aftur til baka.
Búin að fara í San Francisco Balletinn
Fékk í fyrsta skiptið persónulegt bréf með venjulegum póst, mun skemmtilegra en gluggaumslög ;)
Borða risa ís á Fisherman´s Wharf
Farin að rata nokkuð vel í San Francisco
Búin að prófa aðeins að versla í San Francisco lofar mjög góðu thihihi

Nokkrar svipmyndir, spurning að fara að setja upp myndasíðu!

Flottasti og sniðugasti minjagripur sem ég hef eignast, gjöf frá ömmu
Fólk á röltinu í San Francisco

Ég að hlaupa upp brekku í San Francisco í verslunarferð

3 ummæli:
Hanskinn er ótrúlega flottur. En hvar eru innkaupapokarnir í verslunarferðinni í San Francisco?
Íslenska nammið klikkar aldrei - svefn er góður til að lækna heimþrá en það er líka góð verslunarferð - maður hressist alltaf við það að fara og versla smá:)
já, pokarnir ... þeir voru í geymslu neðar í brekkunni :) .. .voru reyndar ekkert rosa margir í þessari ferð ;):)
Skrifa ummæli