Síðast vika var aldeilis strembin. Alveg makalaust hvað maður getur komið miklu í verk á stuttum tíma undir pressu. Ég beitti sjálfa mig þýskum aga til að halda mér við lærdóminni :). Á föstudaginn fór ég í munnlegt próf og gekk bara svona líka vel og því ástæða til að fagna ærlega. Ég fékk barnapíu handa Daisy og skellti mér svo ásamt góðra vinahóp til San Francisco á tónleika með SF sinfóníuhljómsveitinni, síðan var farið á stað sem selur bestu eftirrétti í borginni og endað á koktelbar. Því má bæta við að þetta voru stærstu skammtar af eftirréttum sem ég hef séð á minni ævi, OMG ... og svo gott :). Þegar ég kom heim þá beið mín taugaveiklaður hundur. Haldið ekki að Daisy hafi bara verið ómöguleg meðan ”mamma hennar” lyfti sér upp. Þrátt fyrir að barnapían sé mikill vinur Daisy-jar til margra ára þá dugði það ekki til, til að gera mína sátta samt skildist mér að barnapían hafi reynt að dekra hana, fór mörgum sinnum út að labba með hana og ekkert fékk hana til að hætta að gráta. Daisy var því örmagna þegar ég kom heim sem var svo sem ágætt fyrir mig í morgunn því hún var þá aldeilis ekki á þeim buxunum að fara á fætur um áttaleytið eins og venjulega sem ég var nú mjög sátt með og sváfum því saman út :). Ég er núna að glíma við eftirköst gærkvöldsins, við ákváðum að fara í okkar fínasta púss og reima á okkur spariskóna ;). Ég skellti mér því í hina agalegu hælaskó sem fengu að fara með frá Íslandi en höfðu aldrei verið notaðir hér. Og ég sannreyndi hinn góða og gamla frasa ”beauty is pain”. Já, fæturnir á mér er svo bólgnir og blöðurnar undir fótunum minna helst á þær sem heimsins bestu langhlauparar eiga til að fá. Ég íhugaði að skella inn mynd en hætti við þegar ég áttaði mig á því að kannski væri einhver að borða meðan hann/hún skoðaði bloggið mitt :).
Þessa dagana er ég að reyna að ákveða hvenær ég ætla að láta sjá mig aftur á klakanum og hversu lengi ég eigi að stoppa í London hjá Karen. Og jú, hvort ég eigi að vera villt og skella
mér í klippingu hérna :) sem minnir mig á það, að ég er ekki lengur dökkhærð ... nei, nei sólin gaf mér fría litun svo núna er ég ljós brún/rauðhærð. Ég get engan veginn sagt að ég sé sátt við þennan nýja háralit. Sólinni tókst meira að segja að upplita á mér augabrúnirnar sem hefur aldrei gerst áður.
Ég fer fljótlega að setja upp program fyrir heimsóknina miklu í júní og ákvað því að skella inn mynd af gestinum ásamt mér meðan ég var enn DÖKKHÆRÐ :Þ.
Ég ætla að láta þetta nægja í bili, ég er svo þreytt ... erfitt að vera svona gömul og fara út á lífið hihihihi
Aufwiedersehen, Fjóla
Þessa dagana er ég að reyna að ákveða hvenær ég ætla að láta sjá mig aftur á klakanum og hversu lengi ég eigi að stoppa í London hjá Karen. Og jú, hvort ég eigi að vera villt og skella
Ég fer fljótlega að setja upp program fyrir heimsóknina miklu í júní og ákvað því að skella inn mynd af gestinum ásamt mér meðan ég var enn DÖKKHÆRÐ :Þ.
Ég ætla að láta þetta nægja í bili, ég er svo þreytt ... erfitt að vera svona gömul og fara út á lífið hihihihi
Aufwiedersehen, Fjóla
5 ummæli:
Hæ hæ,
já, svaka fyndið að fá stelpu... Mér datt það bara alls ekki í hug - var alveg viss um að fá annan gutta =) ...Strákagallinn kemur kannski bara að góðum notum eftir allt saman... bíddu - átti það ekki að vera í maí =)
Kveðja,
Lilja
"Ljós brún/rauðhærð". Þú verður nú að skella inn mynd af þér með nýja háralitinn :)
Var bara að uppgötva síðuna þína um daginn og mjög gaman að heyra hvað þú hefur verið að bralla þarna úti. Mér heyrist á öllu að þú þurfir að flytja Daisy til Íslands með þér. En núna set ég síðuna þína í goggle reader svo ég fylgist betur með þér ;)
Knús,
Rakel
sakna þín :(:(:(
p.s. "þýskur agi" múhahaha
Sorry Rakel mín, ekki í boði :) hihihi.
Ég sakna þín líka Sif, við hittumst í sumar :D!
Skrifa ummæli