Hér að neðan kemur ritskoðuð útgáfa af ferðasögunni í máli og myndum ... aðallega myndum ;):).
Við hófum verslunarferðina í “gettó-inu” sem einkenndist af pissulykt og skuggalegu fólki en við fundum samt góðu búðirnar. Síðan var haldið niður í miðbæ og myndirnar segja allt sem segja þarf, held ég.
Eyja á Union square

Nokkrir pokar
Dagur 2/San Francisco skoðuð fótgangandi
Þennan dag gengum við mjög mikið og þá aðallega upp í móti og vorum ekki lítið þreyttar í fótunum eftir allar brekkurnar. Við skoðum til dæmis fjármálahverfið, ítalska hverfið, Telegraph hill/Coit Tower og Crookedest Street. Borðuðum á veitingastað sem hafði hvítlauk í öllu og mikið af honum, fórum í cable car og aðeins komið við í búðum á heimleiðinni.
Kaffibollinn minn
Dæmi um brekku
Við farnar að nálgast Coit Tower


Eyja í Cable car
Eyja í KínahverfinuDagur 3/San Francisco aftur skoðuð fótgangandi
Gengum yfir Golden gate bridge og tilbaka aftur. Einhverja hluta vegna datt okkur í huga að labba niður að Fisherman’s Wharf frá Golden Gate. Þessi göngutúr reyndist lengri en hálft maraþon takk fyrir.
Picnic hjá Golden Gate bridge
Á röltinu
Eyja á Fisherman's Wharf
Sæljón

Dagur 4/Ferðalag um Norður Kaliforníu
Við leigðu bíl og keyrðum um Norður Kalíforníu og gistum í Guerneville. Það helsta sem gert var: fórum í heimsókn í Jelly Belly (sælgætisfyrirtæki), skoðuðum Napa Valley og Calistoga. Fórum í Spa í Guerneville sem var mjög áhugavert og líka mjög gott. Þetta var spa sem kallaðist "wet treatment" og var því nokkuð blautt :).
Eyja og bíllINN
Við í Jelly Belly

Hótelið sem við gistum á

Dagur 5/Heimleið
Pecific Ocean
Sausalito



Við að sprella
Dagur 6/Berkeley
Seinasta deginum var eytt í Berkeley. Löbbuðum um Berkeley og stoppuðum á helstu stöðunum sem selja ómótstæðilegar kökur og enduðum á að borða á einum besta veitingastað í Berkeley sem er indverskur.
Kökur
Meiri kökur :)

Eyja á Berkeley beach

Eyja á Campus

Eyja á indverska staðnum
Hollywood
Ég frétti það síðan fyrir nokkrum dögum að ég bý í aðal Hollywood götu Berkeley. Nokkrar myndir hafa verið teknar í götunni og þessa dagana er verið að taka upp myndina “Happy tears” með Demi Moore í aðalhlutverki. Eins gott að Geogre Clooney fari að láta sjá sig hérna hehehe.
Eyja í Hollywood-götunni.
Læt þetta nægja í bili
/Fjóla
5 ummæli:
Vá hvað það hefur verið gaman hjá ykkur !!! =) Og þið eruð ekkert smá krúttlega sólbrenndar, hehe! Hlakka til að sjá þig á klakanum Fjólan mín =***
kveðja frá Trondheim
ég segi nú bara: að lesa þetta blogg var eins og kvikmyndahandrit um tvær vinkonur á road-trippi hahha, ofsalega hefur verið gaman hjá ykkur - Skemmtilegar og góðar myndir!!!
Já þetta var sko aldeilis góð heimsókn. Takk enn og aftur fyrir mig sæta...
Eyja
:) Greinilegt að þið hafið skemmt ykkur mjög vel. Frábært! Takk fyrir myndirnar nú hefur maður séð smávegins af San fransico :)
Vó þetta hefur verið svaka fjör hjá ykkur - átti reyndar ekki von á öðru;)
En ef Clooney kíkir við í götunni þá kippir þú honum bara með á klakann:)
Skrifa ummæli