fimmtudagur, 28. febrúar 2008

Af hverju er Fjóla alltaf í góðu skapi?

Þegar ég kom í skólann í dag voru allir á Labinu mættir, sem hefur aldrei gerst áður. Þau voru öll að skoða stöðu bandaríkjadalls. Einn ákveður þá að fyrst að ég væri komin að tékka hvernig USD væri vs íslensku krónuna. Niðurstaðan var mér nokkuð hagstæð. Þá segir einn, “þetta er ástæðan fyrir því að Fjóla er alltaf brosandi og í góðu skapi” þá heyrðist í næsta “ég hélt það væri útaf flottu kaffikönnunni sem hún á” og sá síðasti sem tjáði sig sagði “ég hélt að því væri nú bara einfaldlega út af því að hún er Íslendingur”. Ég taldi sjálf að ástæðan væri nú bara að ég hefði bara fæðast svona hehehe. Ég lofaði þeim að ég myndi arfleiða þau að rosalegu kaffikönnunni og þá gætu þau gert tilraun á hvort geðheilsan breyttist eitthvað.

Annars hitti ég Eddu og Linda í dag og kvaddi þau. Þau eru bara farin ... snökt. Þau arfleiddu mig að hinu og þessu. Núna á ég t.d. lúxus prentara, tvær tegundir af fjölskylduspilum og vatnsbirgðir handa heilu fótboltalið. Þakka ég þeim kærlega fyrir þessar gjafir.

Ég leik þessa dagana doktor Fjólu. Litla snúllan mín er núna komin með ljót sár á bakið sem þurfa meðhöndlun. Vonandi er læknamáttur minni mikill.

Þessa dagana hefur verið æðilegt veður og vona ég að vorveðrið sé bara komið til að vera :).

Bið að heilsa í bili,
Fjóla

fimmtudagur, 21. febrúar 2008

Má bjóða þér í kaffi?



Já, ég fékk kaffikönnuna mína í dag :). Ég er því á fylleríi núna (N.B. kaffifylleríi). Mér tókst að klára súkkulaðikökuna með nýlöguðu kaffi (bara pínu illt í maganum núna af ofáti hihihi, hefði kannski átt að sleppa að elda mér kjúlla líka :Þ). Um helgina er spáð mikilli rigningu og stormi .... maður heldur sig því líklega bara heima sem er allt í lagi því ég get eytt tímanum í að drekka alls konar kaffi úr nýja apparatinu mínu. Ég ætla samt ekkert að hætta að fara á kaffihús og fá mér kaffi, kannski ég fari bara aðeins sjaldnar ;):).
Kaffikveðja
Fjóla in heaven ;)

miðvikudagur, 20. febrúar 2008

Afmæli o.fl.


Ég vil óska ömmum mínum innilega til hamingju með afmælin. Þær eiga báðar afmæli í þessari viku. Í tilefni dagsins fá þær þessar bleiku rósir frá mér, sem ég sá úti að labba í síðustu viku. (Nei, veðrið er ekki lengur svona gott, rigningin er komin aftur í heimsókn, vonandi samt bara mjög stutta ;))


Það er alltaf eitthvað að gerast í Berkeley á hverjum degi og yfirleitt eitthvað sem mér finnst mjög undarlegt eða skil ekki ;):). Í þetta skiptið ákvað ég að deila með ykkur atburði sem átti sér stað á þriðjudaginn. Þannig er mál með vexti að það á að fara að stækka íþróttaaðstöðuna á Campus til muna. Til að hægt sé að framkvæma þessa stækkun þarf að höggva nokkur tré. Það þótti nokkrum aðilum bara ekki koma til greina og ákváðu að flytja upp í trén til að passa þau og hafa af augljósri ástæðu fengið viðurnefnið "Tree People". Eftir því sem ég best veit eiga þetta að vera nemendur sem hafa búið í trjánum síðan desember 2006. Já, já þið heyrðuð rétt 2006. Í trjánum höfðu þau bæli til að sofa í, föt og eldhúsáhöld hangandi á trjágreinum. Þau fóru síðan á milli trjá eins og apar í frumskóginum, alveg kattliðug. Á þriðjudaginn var ákveðið að fjarlægja fólkið úr trjánum ásamt búslóð þar sem framkvæmdir eiga að fara að hefjast. Til þess þurfti nú nokkuð margar löggur ásamt aðstoðarliði. Það er vel þess virði að kíkja á myndir af þessu og fólkinu hér. Kannski allt í lagi að taka fram að það var fyrir löngu ákveðið að planta heilum skógi í staðin fyrir þessi örfáu tré s.s. áður var ekki farið niður úr trjánum. Þetta er gott dæmi um atburði sem eiga sér stað í Berkeley og get vart átt sér stað annars staðar.


Ég komst líka að því um daginn að á Campus er strönd. Já, staður sem ber nafnið "Berkeley Beach" þegar veðrið er nógu gott þá mæta nemendur í sundfötum og sóla sig. Eina sem vantar á þessa strönd er vatnið ... en það er bara aukaatriði til að uppfylla skilgreiningu orðsins baðströnd. Ég held samt ég láti það vera að mæta í skólann í bikiníi ... læt aðra um það :).


Ég var með fjórða matarboðið síðan ég kom á mánudaginn. Edda og Lindi komu í fisk og súkkulaðiköku. Ég komst að því að það er vel hægt að borða fisk í USA (alla vega hér). Ég var núna loksins ánægð með súkkulaðikökuna ... það tók tvær tilraunir að komast að því hvað hráfefnið hentaði best hérna o.s.frv. Þetta verður svokölluð móttökusúkkulaðikaka handa gestum :) ... verður á boðstólnum við komu eða brottför eftir því hvernig stendur á í skólanum. Svo til gamans eru hérna nokkrar myndir. Mér finnst blogg með myndum miklu skemmtilegri :).

Edda og Lindi ásamt súkkulaðikökunni :D!
Ég í sólinni upp í hæðum
Síðast en ekki síst ... litla músin mín :)!

laugardagur, 16. febrúar 2008

Happy Valentine’s Day

Núna er ég búin að upplifa það að vera stödd í Bandaríkjunum á Valentínusardaginn og það er sko aldeilis upplifun. Eða eins og einn gamall professor í skólanum sagði við mig, Fjóla trúðu mér þetta verður bráðum official holiday hér í US. Á þessum “merkisdegi” fór ég í munnlegt próf sem fólst í því að ég átti að kenna samnemendum mínum og kennaranum en þessi sérstaki dagur gaf mér að sjálfsögðu tækifæri til að sprella smá í lokin á minn einstaka hátt ;) ... og kennarinn hafði húmar fyrir því múhahahaha :).

Annars lét ég loks verða að því í dag að prófa að fara út að hlaupa. Það er hlaupabraut fyrir almenning í 1km fjarlægð frá mér og skellti ég mér þangað og það var GEGGJAÐ. Hljóp 6km og bara nokkuð sátt með það því ég hef ekki hlaupið í marga mánuði :).
Ég bíð núna spennt eftir að fá kaffikönnuna sem ég var að kaupa :). Ég áttaði mig á því í síðustu viku að slíkt apparat væri nauðsyn.
Bandaríkjamenn eru snillingar í að finna upp hina ótrúlegustu frídaga og eru líka svo sniðugir að láta þá alltaf bera upp á mándegi eða föstudegi .... víííiiiiiiiiii það er lönghelgi (s.s. frí á mándaginn).
Knús og kossar úr sólinni
Fjóla

laugardagur, 9. febrúar 2008

I love it !

Mig langaði bara að segja ykkur að í dag er heiðskýrt og 65 á Fahrenheit. Hversu ljúft ... ég elska þetta veður. Svo les maður að það sé bara óveður í Reykjavík og ég í himnesku veðri. Ég óska þess nú stundum að vera ekki hérna í námi ... ómögulegt að þurfa að vera svona mikið inni að læra :). Spurning um að fara bráðlega að þrífa sólstólana og sópa veröndina ;).

Sólskinskveðja
Fjóla
p.s.
Var ég búin að segja ykkur að það er langt síðan ég sólbrann fyrst hihihihi ;)

sunnudagur, 3. febrúar 2008

Erfið helgi: Sjúkrasaga

Á fimmtudaginn fór Daisy að vera eitthvað ólík sjálfri sér. Á föstudaginn fór hún svo að æla og ældi alla aðfaranótt laugardags og bar sig mjög illa. Var alveg hætt að vilja borða og drekka. Við hvorugar sváfum nokkuð þá nótt. Á laugardaginn leist mér ekkert á blikuna þegar hún fór að æla blóði og ákvað því að reyna að koma henni til læknis. Við komumst síðan á dýraspítala með aðstoð vinar sem keyrði okkur. Þegar við komum á dýraspítalann varð Daisy enn þá veikari. Það fóru koma út kýli um allan líkama hennar. Eftir röngten og blóðprufu kom í ljós að blóðið leit illa út og eitthvað virtist vera innan í henni og ekki var ljóst á þessum tímapunkti hvort hún þyrfti að fara í aðgerð eða gæti losað sig við þetta sjálf. Eftir þetta vorum við sendar á bráðmóttöku fyrir hunda og ketti og þar átti Daisy að vera eftir. Það var ekkert lítið erfitt fyrir mig að skilja hana eftir en ég átti ekki annara kosta völ.
Sem betur fer hresstist litla greyið mitt fljótt og fékk ég að sækja hana daginn eftir. Hvað gerið Daisy mína svona veika kemur trúlega aldrei í ljós. Læknarnir voru vissir um að hún hefði fengið ofnæmi fyrir einhverju og trúlega hefði hún borðað eitthvað dýr/pöddu eða eitraða sveppi og jafnvel hefði eitthvað dýr stungið hana. Ég tel mig hafa fundið staðinn í garðinum þar sem þessi hættulegi sökudólgur er að finna og er ég búin að reyna að girða hann af og vona ég að Daisy komist ekki þarna inn aftur.
Núna hefur litla snúllan mín það bara mjög fínt og steinsefur alveg uppvið mig. Hún er reyndar mjög hrædd um að ég/”mamma hennar” yfirgefi hana aftur og fer strax að gráta ef hún sér mig ekki. Ég þarf næstu dagana að elda handa henni því hún þarf að fá alveg sérstakt fæði og fær að borða oftar en venjulega yfir daginn. Ég þarf því að reyna að vera sem mest heima næstu vikuna. Ég ætla nú samt alltaf að mæta í tíma.
Hafið það gott elskurnar!

Knús, knús
Fjóla

p.s. ég breytti um kommentkerfi svo núna ættu allir að geta kommentað sem vilja ;):).

föstudagur, 1. febrúar 2008

Fyrsta opinbera heimsóknin frá Íslandi

Jónas kom og var hjá mér í tvo daga :). Hversu gaman var að fá gest frá Íslandi. Við tókum gott kaffihúsarölt, ég sýndi honum Indian Rock Park og að sjálfsögðu eldaði og bakaði handa honum :D. Honum leist svo vel á hverfið mitt og húsin svo ég held bara að hann sé að hugsa um að flytja hingað hihihi ;).
Ég ákvað að prófa að fara í dag í svona þvottahús eins og maður sér í bíó til að þvo teppi sem voru öll í hundahárum og hundabæli. Ég vildi ekki gera mína þvottavél alla í hundahárum :). Aumingja sá eða sú sem notaði þvottavélina á eftir mér múhahaha. Að sjálfsögðu vonaðist ég eftir að rekast á Josh Hartnett eða einhvern sem jafnaðist á við hann eins og í myndinni 40 Days and 40 Nights en það gekk eftir í þetta skiptið. Annars er litla greyið mitt hún Daisy eitthvað lasin búin að gubba nokkrum sinnum í dag og rosa lítil í sér .... litla músin.

Myndir til gamans

Jónas að fá sér eftirrétt, heimabökuð súkkulaðikaka (ath. bragðið en ekki útlitið sem skiptir mál, fegurðin kemur að innan ;)) og ís.

Myndir sem sýna útsýnið frá Indian Rock Park: