Þegar ég kom í skólann í dag voru allir á Labinu mættir, sem hefur aldrei gerst áður. Þau voru öll að skoða stöðu bandaríkjadalls. Einn ákveður þá að fyrst að ég væri komin að tékka hvernig USD væri vs íslensku krónuna. Niðurstaðan var mér nokkuð hagstæð. Þá segir einn, “þetta er ástæðan fyrir því að Fjóla er alltaf brosandi og í góðu skapi” þá heyrðist í næsta “ég hélt það væri útaf flottu kaffikönnunni sem hún á” og sá síðasti sem tjáði sig sagði “ég hélt að því væri nú bara einfaldlega út af því að hún er Íslendingur”. Ég taldi sjálf að ástæðan væri nú bara að ég hefði bara fæðast svona hehehe. Ég lofaði þeim að ég myndi arfleiða þau að rosalegu kaffikönnunni og þá gætu þau gert tilraun á hvort geðheilsan breyttist eitthvað.Annars hitti ég Eddu og Linda í dag og kvaddi þau. Þau eru bara farin ... snökt. Þau arfleiddu mig að hinu og þessu. Núna á ég t.d. lúxus prentara, tvær tegundir af fjölskylduspilum og vatnsbirgðir handa heilu fótboltalið. Þakka ég þeim kærlega fyrir þessar gjafir.
Ég leik þessa dagana doktor Fjólu. Litla snúllan mín er núna komin með ljót sár á bakið sem þurfa meðhöndlun. Vonandi er læknamáttur minni mikill.
Þessa dagana hefur verið æðilegt veður og vona ég að vorveðrið sé bara komið til að vera :).
Bið að heilsa í bili,
Fjóla



Edda og Lindi ásamt súkkulaðikökunni :D!




