miðvikudagur, 16. janúar 2008

Loksins fékk ég netið :)

London-Cambrigde

Ég átti þrjá góða daga í London og Cambrigde. Atburðarás í hnotskurn: Teboð hjá drottingu, göngutúrar, heimsóttum rannsóknateymi, Cambridge háskóli, pöbbar og góður fiskur. Heimsóknin í Cambridge var skemmtileg og áhugaverð. Við skoðuðum líka Cambridge háskóla sem er rosalega flottur. Aldrei á ævi minni séð svona flottar byggingar notaðar fyrir háksóla :). Ég læt myndirnar hér að neðan tala sínu máli:


Berkeley


Flugið frá London til San Frans var bara nokkuð ágætt. Hverfið sem ég bý er mjög fínt og rólegt sjáflsagt eitt besta hverfi sem hægt er að hugsa sér. Nágrannar mínir eiga felstir mjög flotta bíla og felst húsin hér eiga sér mikla sögu og mörg 100 ára gömul. Ég bý í þeim hluta Berkeley þar sem eru brekkur, með stóru B-i :). Hingað til hef ég farið allt nánast labbandi svo ég hlýt að koma heim í rosalegu formi ;).

Hundur-Daisy
Hún er voða blýð og góð, þjást reyndar af athyglisbrest, þ.e.a.s. hún heldur einbeitingu í mjög stuttan tíma og því frekar erfitt að leika við hana og taka myndir hafa henni :). Hún er farin að elska mig alveg útaf lífinu enda læt ég ýmislegt eftir henni :). Hún er algjört krútt og má segja að ég sé orðinn hennar "love slave" ;). Hún er háværasti hundur í svefni sem ég hef kynnast og gefur frá sér hin ýmsu hljóð. Hún Daisy skvís á sér sögu og hana geta áhugasamir lesið hér.


Skólinn
Mér líst bara ágætlega á skólann. Tímarnir eru reyndar ekki byrjaðir enn þá. Þegar ég mætti í fyrsta skiptið í skólann var allt tilbúið fyrir mig; aðstaða, tölva, tölvuaðgangur og póstkassi. Ég er bara búin að hitta þrjá af þeim sem eru með mér á Labi þar sem það eru ekki allir komnir aftur eftir jólafrí.

Lífið
Í öllum góðum amerískum rómantískum gamanmyndum er alltaf hafður “welcome dinner” fyrir nýja nágranna. Að sjálfsögðu var mér þá boðið í kvöldmat hjá eini nágrannakonu minni. Í matinni var eitthvað voða gott og flott. Ég því miður náði ég ekki hvað allt þetta hét því þetta var mest allt eitthvað sem ég hafði aldrei séð áður :). Þetta smakkaðist allt mjög vel, en þið getið samt ímyndað ykkur hvað ég þurfti að beita mig miklum aga til að geta smakkað á einhverju sem ég hafði aldrei smakkað áður. Ég var að sjálfsögðu ekki send heim án þess að taka með mér fullt af afgöngum. Núna skil ég afhverju útlendingar sem koma til Íslands segja að við séum kuldarleg ef þetta er svona standard aðferð til að taka á móti nýjum í götuna. Því miður fer þessi frábæra nágrannakona mín farin í burtu og kemur ekki til baka fyrr en í lok maí. Ég er búin að skoða þrjá staði fyrir utan Berkeley síðan ég kom; stóran hundagarð; Kehoe beach og nágrenni; og hluta af Tilden regional park.

Svipmyndir frá Kehoe beach og nágrenni



Svipmyndir frá Tilden regional park


Knús og kram
Fjóla
p.s. vonandi eru þið strax farin að sakna mín ;):)

11 ummæli:

Nielsen sagði...

NáttúrulífsFjólan!!!
Það er naumast flóran og myndatökutaktarnir :)
Æðislegt.
Hlakka til að fylgjast með þér ljúfan.
Knús í krús

Rakel sagði...

Æðislegt að geta fylgst með þér Fjóla mín. Skemmtilegar myndir, greinilega fínt veður þarna :P

Kveðja úr snjónum ;)
Rakel

Rikey Huld sagði...

Frábært að þú skulir blogga um lífið í ameríkunni - Hafðu það sem allra best og heyri vonandi fljótlega í þér á skype-inu;)

Sigrun Lilja sagði...

Æðislegt! Góða skemmtun og gangi þér vel í útlandinu

Viktoría sagði...

HÆÆÆÆÆÆÆÆÆ, vá ég fattaði ekki að þú værir komin út!!! Gangi þér ógeðslega vel og skemmtu þér vel. Aldrei að vita nema mar kíki á þig:)
kv.
Viktoría

Marta Rós sagði...

Fjóóólaaaa mííííín =) Ohhh en gaman að lesa bloggið þitt, dugleg ertu =) Þetta lítur alveg hrikalega vel út! Og hún Daisy er algjört rassgat, vonandi passar hún vel uppá þig.
Við söknum þín allavegana voða mikið á Smyrli. Hlakka til að fylgjast með þér á blogginu snúllan mín =*******

Margret Maria sagði...

Gott að geta fylgst með þér í útlandinu Fjóla mín, og jú, við söknuðum þín mikið í saumó í gærkvöldi. Gangi þér vel!

Knús, Margrét María

Unknown sagði...

Rosalega fallegt umhverfi og sæt hún Daisy. Fór að flissa þegar ég las "love-slave" eða þvíumlíkt um samband ykkar hehehe. Bestu kveðjur úr DK og hlakka til að fylgjast með ævintýrunum;) siF

Hundamyndir sagði...

Hæ, hæ, gaman að þú ert komin með síðu. Nú fæ ég að sjá hundinn hjá þér. Hann er ósköp vinalegur.

Kær kveðja,
J.Ó.

Ólafía sagði...

Sæl frænka ég sit hérna með afa og er að sýna honum síðuna þína. Vona að þú hafir það gott í ameríku.
Kveðja,
Ólafía

Sigrun sagði...

Hæ hæ
ánægð með þig að vera búin að setja upp bloggsíðu :)
ég hef greinilega misst af e-u... hafði ekkert heyrt um hundinn, var að reyna að lesa nánar um hann á linkinum en hann virkaði ekki.. kannski er það bara klikk í minni tölvu.
Allavega, ég er búin að bæta þér í blogghringinn þ.a. ég hlakka til að fylgjast með þér :)