þriðjudagur, 22. janúar 2008

Má bjóða þér í mat?




Aðalréttur: smjörsteiktar saltaðar kartöflur og rauðlaukur bragðmætt með jalapenjo osti


Eftirréttur: Haagen-Dazs ís


Svona hljómaði matseðillinn í kvöld hjá námsmanninum sem var of upptekinn til að fara í búð. Annars byrjaði ég í kúrsum í dag og það verður nóg að gera :). Hin venjulegi Berkeley graduated student tekur tvö fög og vinnur svo eitthvað í verkefninu sínu. Fjóla tekur þrjá kúrsa og vinnur í rannsóknaverkefninu. Allir sem ég hef hitt í skólanum segja alltaf "vó ertu klikkuð?" þegar þeir heyra planið mitt hihihi. Annars er stemmingin á labinu mínu öll að koma til :D, ég er alveg að vinna í að poppa þetta upp ;). Strákurinn sem situr hliðina á mér á labinu mætti í fyrsta skiptið í dag og var ótrúlega spenntur að hitta mig því hann hafði lesið að Íslendingar væru HAPPIEST PEOPLE IN THE WORLD hahahahahah.

Stuðkveðjur, Fjóla

4 ummæli:

Rikey Huld sagði...

og að sjálfsögðu getur þú staðfest að Íslendingar eru happiest people in the world:)

Fjola sagði...

hehehe ... ég sagði honum það líka ... og útskýrði fyrir honum hver galdurinn væri ;):)

Sigrun Lilja sagði...

nammi namm. Verði þér að góðu.

Unknown sagði...

mmmm Hagendaz ís, hefði verið nóg að hafa hann í aðalrétt líka haps! verður gaman að heyra hvernig stemningin í labinu þrósast ;)