Hvað hefur gerst síðan síðast? Svo agalega mikið að ég nenni ekki að rita nema lítið brot. Fyrst ber að nefna að fyrir nokkrum dögum fóru frá mér yndisleg hjón sem voru búin að vera hjá mér í tvær vikur. Þau dekruðu mig, og dekruðu mig svo aðeins meira og það var voða gott og gaman :). Ég var keyrð í skólann á morgnana og svo fékk ég alltaf eitthvað gott í kvöldmat, oftast eitthvað alveg hrikalega gott :D. Þau opnuðu fyrir mér nýja matarmenningarheima ... t.d. borðaði hvítlaukskrabba með smekk og það var skuggalega gott. Því miður gleymdi ég alveg að taka myndir, á reyndar eina sæta mynd af þeim hjónum en ég tími ekki að skella henni á veraldarvefinn :).
Að öðru þá fjárfesti ég í mublu hérna fyrir alls ekki svo löngu og ég held það sé bara einn dýrasti hlutur sem ég hef keypt síðan ég kom. Hvað haldi þið að ég hafi keypt????
Að sjálfsögðu var þetta handa litla barninu mínu henni Daisy. Ég s.s. keypti handa henni nýtt rúm þar sem hún pissaði eina nóttina í aðalrúmið sitt. Hún er ekkert lítið ánægð með þetta rúm
og hefur verið agalega þæg síðan hún fékk það sem er gott þar sem það er búið að vera og er svo mikið að gera í skólanum. Núna er ég loksins farin að sjá fyrir endann á þessari önn og 12/13 maí vonast ég til að vera búin með öll próf og skila öllum verkefnum. S.s. bara tvær vikur í að ég get farið að slæpast, mæta rétt fyrir hádegi á labið, taka tveggja tíma hádegismat og fara svo heim um þrjúleytið hihihi ;)
Það sem er helst að frétta úr skólanum er að ég er farin að útbúa kennsluefni fyrir einn professorinn hérna ... ég ætla rétt að vona að hann treat-i mig vel í munnlega prófinu í næstu viku fyrir vikið :).
Bíddu, bíddu ... þetta er ekki búið, ein gleði frétt svona í lokin, Æland er orðin stoltur eignandi flugmiða til mín í byrjun júní ... hversu gaman, þá vikuna verður bærinn málaður rauður, eldrauður :D!
Það bíða mín verkefni og próflestur ... verð að fara að sinna þeim.
Læt í mér heyra aftur um næstu helgi ...
Að öðru þá fjárfesti ég í mublu hérna fyrir alls ekki svo löngu og ég held það sé bara einn dýrasti hlutur sem ég hef keypt síðan ég kom. Hvað haldi þið að ég hafi keypt????
Að sjálfsögðu var þetta handa litla barninu mínu henni Daisy. Ég s.s. keypti handa henni nýtt rúm þar sem hún pissaði eina nóttina í aðalrúmið sitt. Hún er ekkert lítið ánægð með þetta rúm
og hefur verið agalega þæg síðan hún fékk það sem er gott þar sem það er búið að vera og er svo mikið að gera í skólanum. Núna er ég loksins farin að sjá fyrir endann á þessari önn og 12/13 maí vonast ég til að vera búin með öll próf og skila öllum verkefnum. S.s. bara tvær vikur í að ég get farið að slæpast, mæta rétt fyrir hádegi á labið, taka tveggja tíma hádegismat og fara svo heim um þrjúleytið hihihi ;)Það sem er helst að frétta úr skólanum er að ég er farin að útbúa kennsluefni fyrir einn professorinn hérna ... ég ætla rétt að vona að hann treat-i mig vel í munnlega prófinu í næstu viku fyrir vikið :).
Bíddu, bíddu ... þetta er ekki búið, ein gleði frétt svona í lokin, Æland er orðin stoltur eignandi flugmiða til mín í byrjun júní ... hversu gaman, þá vikuna verður bærinn málaður rauður, eldrauður :D!
Það bíða mín verkefni og próflestur ... verð að fara að sinna þeim.
Læt í mér heyra aftur um næstu helgi ...
Risa knús frá Ameríku
Fjóla
Fjóla
10 ummæli:
komment, komment, komment..
já, og gleðilegt sumar ;)
Gleðilegt sumar Fjóla - Það verður þvílíkt fjör hjá ykkur Eyju í júní :)
jeij jeij... loksins fékk ég meiri fréttir :)
Endilega haltu þessu áfram, gaman að fylgjast með ævintýrum þínum í USA
Kv. Guðný Birna
ákaflega góður penni fjóla og gott að heyra að þú hafir nóg að gera - annars dyttir þú kannski bara ofan í Haagendas ísdollu? gleðilegt sumar beibí.
Jeijjj, blogg blogg blogg =) Æðisleg myndin af Daisy í nýja rúminu hennar, hún hefur það greinilega svoooo gott, haha!
En lykke til með próflesturinn, þetta klárast allt saman eftir pínku ponsu stund =)
Sumarkveðja frá klakanum =***
Vúhú nýtt blogg! =D Gaman að heyra fréttir af ykkur Daisy! Hafðu það gott og gangi þér vel í prófunum! :)
Hæ mín kæra, ég er alltaf að kíkja. Þú hefur vonandi ekki farið í dýrari búð en Target að kaupa þessa mublu. Target er snilld í hundadóti eins og öllu hinu! Ég keypti mest allt fyrir Birtu í Target. Þú ert líklega búin að frétta af fjölgun á Tunguveginum?
Sif! ótrúlegt en satt þá er ég búin að borða voða lítið af ís hérna en þeim mun meira af kökum og súkkulaði :D!
Ragnhildur! jú, ég var búin að frétta að þú værir komið með lítið krútt, ég hlakka til að sjá hana í sumar. Ég hef nú ekki komið í Target en þessi búið sem ég versla í er örugglega dýrari. Það er allt ORGANIC í henni og agalega náttúrulegt, svona svipað og Heilsuhúsið heima nema bara fyrir dýr :). Ég er samt ekki alveg búin að átta mig á hvað organic rúm þýðir :).
Mér sýnist á myndinni að þú hafi gert rosagóð kaup. Rosalega líður Daisy vel nýja rúminu sínu.
Skrifa ummæli