föstudagur, 13. júní 2008

Vikan!

Jæja, er ekki kominn tími á eitt örstutt blogg :). Þá er bara ein vika þangað til ég legg af stað til Íslands og ég mæti ekkert á labið þá vikuna. Hún verður nýtt í að koma ýmsu í verk sem ég hef ekki komist yfir enn þá ásamt því að þrífa, þvo, pakka og annað stúss. Ég verð reyndar frekar upptekin við að fara í kveðjupartý. Mér hefur verið boðið í fjögur farewell Fjóla party ... það má engu tap að ég sé pínu klökk ;). Það er alveg á hreinu að ég mun kveðja Berkeley með tárum. Ég mun sakna svo margs :).
Ég mætti með tvær kökur á labið í gær, tvær Fjólu special ;) og þær slógu aldeilis í gegn. Yfir kökuátinu spurði professorinn: hvenær kemur þú svo aftur? Ég: Uff, vonandi fljótlega, ég verð nú að koma fljótlega að heimsækja hundinn. P: Takk fyrir hreinskilnina Fjóla ... ætli hann hafi viljað heyra einhverja aðra ástæðu ??? hehehehe
Á morgun fer ég til San Francisco og þá trúlega í síðasta skiptið í bili ... unbelievable. Annars er Hiking tímabilið mitt byrjað aftur, var bara að koma heim úr einu. Til gamans læt ég nokkrar myndir fylgja með.



Kannski skelli ég einhverjum myndum inn á bloggið úr kveðjuhófunum, sjáum til.

Knús og kram
Fjóla
p.s.
Ég frétti það í vikunni að það væri búið að panta fyrir mig á Þjóðhátíð og að ég hefði gistingu í húsi, erum við ekki öll sammála um að ég sé ofgömul til að prófa Þjóðhátíð í fyrsta skiptið og svona í viðbót ekki týpan ;)?

3 ummæli:

Unknown sagði...

Pínu öfunda þig að vera fara til Íslands eftir minna en viku.... sé þú munt hafa í miklu að snúast með þessi partý :-)

...og Eyjar: þú ert ekki týpan, frekar en ég....ég passa frekar inn í hóp eldriborgara á Grund svo finnst mér félagsvist svo skemmtileg ;-)

kv. SIF

Rikey Huld sagði...

Fjóla maður verður aldrei of gamall til að prófa eitthvað nýtt;) En hlakka til að sjá þig hérna á klakanum - njóttu síðustu daganna í ameríkunni :)
Kv.
Ríkey

Nielsen sagði...

Ef það var einhvern tíman til Þjóðhátíðartýpan - þá var það Fjóla Jóhannesdóttir!!! Ekki spurning.